Skortur á kennurum! Réttur brotinn á nemendum.

Forsíða Fréttablaðsins í gær er undirlögð af þessari staðreynd.  Kennarar eru á flótta út úr skólunum vegna lélegra kjara. Hvað eftir annað höfum við verið send inn í skólana úr kjarabaráttu með lagaboði.  Enginn kennari trúir á að við fáum leiðréttingu á launum í næstu kjarasamningum. Enginn sem ég hef heyrt í.  Kennarar sem eru komnir með reynslu og sjá fram á mörg ár enn í starfi eru að mennta sig burt úr kennslu!  Það væri gaman að vita hve margir kennarar eru í fjarnámi að læra til annarra starfa.  Ungu kennarnir eru enn frískir og hlaða á sig aukavinnu sem nóg er af. Það er hægt í nokkurn tíma. En þreyttur kennari er ekki góður kennari.  Það kemur að því að þreytan étur upp starfsgleðina. Það er skemmtilegt starf að kenna ef starfsumhverfið er gott.  Á það ekki um öll störf? 'Ojú. En þegar nær öll vinnuævin hefur verið þannig að manni finnst maður aldrei vera metinn til sanngjarnra kjara þá vellur upp óánægja og leiðindi. Það er það sem við stöndum frammi fyrir i grunnskólunum núna.  Þeir eru að fyllast af leiðbeinendum því kennararnir eru á förum eða farnir. 

10% kennslukrafta í Hafnarfirði eru leiðbeinendur og þeim fjölgar ört. 'Agætis fólk. En nýstúdent sem fær 4.bekk í umsjón er kannski ekki það sem við viljum sjá í sömu andrá og ráðherra menntamála tala um meistarnám fyrir grunnskólakennara!

Ekki hægt að halda úti smíðakennslu í öllum skólum hér í bænum.  'A öðrum stað hefur skólabókasafninu nærri alveg verið lokað og safnakennarinn notaður í annað. Bara fátt eitt nefnt. 

Nei ég á  ekki von á kjarasamningi sem skilar neinu öðru en því sem undanfarnir samningar hafa gert= meiri vinnu en EKKI auknum launum

Þessvegna fékk ég  mér aðra vinnu til að hafa efni á að vera kennari.


ó Reyjavík ó Reykjavík!

Nýr TRAUSTUR (félagslega þenkjandi?) meirihluti í Reykjavík. Hvað á kona að halda....?
mbl.is Nýr meirihluti kynntur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Trabantinn, blessuð sé minning hans

Frábær mynd um þann glæsilega eðalvagn Trabantinn var í sjónvarpinu núna fyrir helgina. Ég varð eiginlega miður mín yfir því að Trabbinn  sem tilheyrði minni fjölskyldu er horfinn af sjónarsviðinu.  Sá góði bleiki og svarti bíll átti stórleik í fjölskyldulífinu um tíma.  Þegar við hjónin sáum  fram á að elsta barn var komið með bílpróf og fjölskyldubíllinn stefndi í að verða að bitbeini og jafnvel í stórhættu á að fá á sig ótímabærar skrámur lögðumst við í pælingar.  Telpukornið var líka í stórhættu á að leggjast í djamm! Djamm kostar peninga og nú sáum við okkur leik á borði.  Ef telpukornið væri látin í stórskuldir að hætti sannra íslendinga væri minni djammhætta því innkoman færi í að borga skuldir! Hún eignaðist nýjan einkabíl. Ökumaðurinn verður jú að vera edrú! Við hefðum fjölskyldubílinn í friði fyrir áhættuökumennsku. Var þetta ekki bara snilld.  Henni fannst þetta frábært.

Það var pantaður nýr Trabant hjá IH og tekið bankalán. Nú gat stúlkubarnið ráðið sig í karlavinnuna sem var í tveggjastrætóstunda fjarlægð og gaf meira af sér en kvennavinnan í heimabænum!

Það var stórkostleg stund þegar nýir eigendur og nokkrir tugir Trabba hittust í porti á Ártúnsholtinu.  Bílarnir voru ræstir af misóvönum Trabant ökumönnum.  Blátt reykjarskýið lá yfir planinu og bílarnir tröbbuðu nafnið sitt glaðir í nýjum heimkynnum.  Mín kona kom stolt eins og Range Rover eigandi akandi í hlað með pabbann sinn skælbrosandi í framsætinu. Þau voru æðisleg bíllinn og dóttirin. Bíllinn gekk undir nafninu Hraðbrandur.  Þessi bíll var frábær í snjó og ófærð. Ef eitthvað stóð fyrir öðrum bílum þá smaug Trabantinn framhjá.  Einu sinni lá okkur mægum á niður Laugaveg að kvöldlagi.  Allt fast í snjó og við skutumst bara framhjá eftir gangstéttinni enda enginn á gangi í augnablikinu og bíllinn örmjór! Þegar frá leið þótti eigandanum grái liturinn full grár.  Þá skelltum við mæðgur okkur í málningargallann og máluðum bílinn bleikan að framan en svartan að aftan og voru bleikar eldtungur þar sem litirnir mættust.  Þessi glæsilegi bíll fékk bréf frá öðrum Trabanti sem var svartur og rauður með eldtungum, sá var orðinn Trabant"pikupp" tveggja manna töffarabíll. Hann vildi trúlofast okkar bíl! Eigendur bílanna hittust aldrei og ég veit ekki hvernig fór með trúlofunina.  Eftir langa og dygga þjónustu endaði Hraðbrandur litli í margra bíla árekstri og var klesstur bæði að framan og aftan. Þótti ekki svara kostnaði að gera við hann eftir þau ósköp.

Seinna eignaðist ég svo Trabantakandi tengdadóttur. Þótti það kostur á stúlkunni þeirri.


Snjór og draugahestar

Snjór og tær rómantík að ríða út á fallegustu reiðvegum landsins! Við erum rétt farin að hreyfa gæðinga og bara gaman.  Það er svooooo fallegt að ríða í gegn um furulundina hérna fyrir ofan Hafnarfjörð. Og ekki minnkar það þegar tréin eru þakin mjöll.  Það heyrist varla í hestunum og rétt eins og maður líði áfram í draumi.  Í kvöld gerðist nokkuð dularfullt.  Það birtust tveir draugahestar í gerðinu okkar. Við erum nokkur um gerðið og enginn þekkti þessi tvö hross. Það upphófst mikil spæjara vinna. Enginn eigandi fannst lengi vel.  Svo eftir magnaðar rannsóknir hafðist upp á manni sem átti von á hrossum í desember ef ferð félli til. Nú ferðin féll í dag, en enginn hafði fyrir því að láta viðtakanda vita og var hann bundinn í vinnu víðsfjarri hesthúsinu. Jarpur og Gráni eru þó komnir í hús og búnir að fá tuggu og allt er gott sem endar vel.

 


Komin á moggablogg

Nú hef ég flutt mig hingað af gamla blogginu mínu. Það hefur ekki verið mikið bloggað undanfarið, þó ekki hafi vantað áhugaverð málefni. Til dæmis að fólk sem hefur grætt mikla peninga hratt er farið að tapa sömu peningum enn hraðar sem er auðvitað slæmt.  Svo hefur það komið á þá bera í Grindavík að það snjóar á Íslandi í janúar! Svona streyma ávallt til manns fréttir sem hægt er að hafa skoðanir á.  

 En við hér í húsi höfum haft það náðugt um helgina og nutum lífsins í sameiginlegu sumahúsi allra starfsmanna Hafnarfjarðarbæjar um helgina.  Þetta er frábært hús í Skorradal. Þar var snjór yfir öllu og Skorradalsvatn ísilagt og rennislétt.  Unaðslega fallegt.  Sem sagt frábær helgi með manni,börnum og barnabörnum, heitum potti og einu stóru lambalæri og rauðvínsflösku.


Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband