Ráðherrann hefur talað og gefið tóninn

Jæja kæru félagar nú hefur ráðherra menntamála talað! Hækka þarf laun kennara. (Er þetta sami ráðherra og lét það átölulaust að við værum send heim úr kjarabaráttu með lagaboði án launahækkana? Ekki einu sinni svo vel að við héldum í við verðbólgu!)

Það eru greinilega góðir tímar framundan.  Ráðherra sem hefur ekkert með launamál að gera hefur talað og helst að skilja á kennarforystunni að það eina sem við þurfum að gera er að rétta út lófann og í hann komi þessi líka góða leiðrétting á laununum okkar... ef ekki bara hellings launahækkun.  Talað er eins og við kennarar séum í einhverskonar limbói og hægt verði að hækka kennara án þess að horfa til annarra stétta sem einnig eru í launabaráttu.  Ég hef enga trú á að við fáum einhverja sanngjarna hækkun á launum okkar.  Margoft búin að brenna mig á bjartsýninni. Það gerist ekki neitt markvert í launa- og kjaramálum kennara fyrr en við kljúfum okkur í smærri einingar sem selja vinnu sína á verktakabasis.  Svona fjölmenn stétt kostar svo mikið í hverri hækkun að það verður ekkert um slíkt að ræða. Hvað gerist ekki í Reykjavík þegar talað er um samskonar eingreiðslu og var í Kópavogi. Bennt er á óhemjuháa tölu og sagt að slíkt komi ekki til greina. Svipað  hlutfall hlýtur að vera á milli innkomu og fjölda kennara beggja sveitarfélaga. En það er staðreynd að margir kennarar eru að hugsa til hreyfings og svo verður áfram nema að til verulegra kjarabóta komi. Núna er stéttin orðin mjög "gömul" og á næstu komandi árum fara út margir ellikennarar eins og ég. U.þ.b. 100 manns á ári. Tiltölulega fáir eru "miðaldra" í starfsaldri talið.  Ungu kennararnir stoppa stutt og eru á mikilli hreyfingu á milli staða. Rétt eins og annarsstaðar á vinnumarkaði er það liðin tíð að fólk "æfiráði"sig. Þessvegna þarf að gera vel við hæfileikamikið fólk sem öðrum kosti menntar sig út úr kennslunni.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband